Íþróttir

Englendingur til liðs við Grindvíkinga
Miðvikudagur 1. júlí 2020 kl. 13:30

Englendingur til liðs við Grindvíkinga

Grindavík hefur fengið Englendinginn Mackenzie Heaney á láni frá enska liðinu Whitby Town. Mackenzie Heaney er 21 árs framliggjandi miðjumaður sem getur einnig leikið á kantinum. Hann kom til reynslu til Grindavíkur í síðustu viku og hreif þjálfara liðins og forráðamenn með færni sinni. Hann er með öflugan vinstri fót og er góður skotmaður.

Heaney kemur úr unglingaakademíu Newcastle United og lék yngri liðum Newcastle við góðan orðstír. Hann ólst upp með Longstaff bræðrum sem í dag leika báðir með aðalliði Newcastle.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Heaney á að baki leiki með U17 ára landsliði Englands en hefur einnig verið valinn í yngri landslið Skotlands. Heaney þótti gríðarlega efnilegur hjá Newcastle en lenti í mjög erfiðum meiðslum á öxl og náði ekki að vinna sér inn áframhaldandi samning hjá úrvalsdeildarfélaginu í Englandi. Hann gerði nýverið samning við enska liðið Whitby Town sem hefur nú lánað leikmanninn til Grindavíkur í sumar.

Það voru skemmtilegir endurfundir á fyrstu æfingu Heaney með Grindavík þegar hann hitti Hilmar McShane sem hann lék með hjá yngri landsliðum Skotlands fyrir nokkrum árum. Lítill heimur, segir í frétt frá UMFG.