Fréttir

Ungur ökumaður í vímu og aldrei tekið bílpróf
Föstudagur 31. maí 2019 kl. 10:10

Ungur ökumaður í vímu og aldrei tekið bílpróf

Rúmlega tvítugur ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum tók úr umferð í gær var í slæmum málum svo ekki sé meira sagt. Hann hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Hann var grunaður um fíkniefnaakstur, sem hann játaði. Bifreiðin sem hann ók var á þremur negldum hjólbörðum.
Auk hans voru þrír ökumenn teknir úr umferð í vikunni vegna gruns um fíkniefnaakstur.
Þá voru tíu ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 143 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024