Fréttir

Undir áhrifum í hraðakstri
Miðvikudagur 26. júní 2019 kl. 12:05

Undir áhrifum í hraðakstri

Allmörg umferðarlagabrot hafa komið á borð lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Ökumaður sem var stöðvaður í hraðakstri var jafnframt grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar, sem grunaður var um ölvunarakstur ók sviptur ökuréttindum. Þriðji ökumaðurinn framvísaði ökuskírteini sem reyndist vera grunnfalsað.

Fáeinir ökumenn til viðbótar voru teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur. Þá voru á annan tug ökumanna kærðir fyrir að aka of hratt.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024