Fréttir

Tómas ráðinn forstjóri HS Orku
Sunnudagur 3. nóvember 2019 kl. 17:08

Tómas ráðinn forstjóri HS Orku

Tómas Már Sigurðsson hefur verið ráðinn forstjóri HS Orku. Mun hann taka við starfinu frá og með næstu áramótum.

Tómas Már kemur til liðs við HS Orku eftir farsælan feril hjá Alcoa, þar sem hann gegndi síðast stöðu aðstoðarforstjóra á heimsvísu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Bjarni Þórður Bjarnason, stjórnarformaður:

„Tómas hefur mikla reynslu af íslenskum raforkumarkaði, sem og af uppbyggingarverkefnum og stefnumótun jafnt innanlands sem utan. Hans reynsla og þekking mun nýtast vel á því vaxtarskeiði sem framundan er hjá fyrirtækinu.“

Tómas Már Sigurðsson, nýráðinn forstjóri:

„Það er mér mikil ánægja að ganga til liðs við HS Orku. Fyrirtækið hefur verið frumkvöðull í jarðhitanýtingu auk margs konar nýsköpun og þróun henni tengdri, líkt og Auðlindagarður HS Orku ber vitni um, en hann er einstakur á heimsvísu og til marks um það hvernig hægt er að nýta auðlindir með sjálfbærum hætti, samfélaginu og umhverfinu til heilla. Þau tækifæri sem blasa við HS Orku eru afar spennandi og ég hlakka til að vinna að þeim með því afburðarfólki sem hjá fyrirtækinu starfar.“

Tómas Már hefur starfað um árabil hjá Alcoa, þar sem hann gegndi stöðum forstjóra Alcoa á Íslandi, í Evrópu og Mið-Austurlöndum, og nú síðast frá 2014 stöðu aðstoðarforstjóra fyrir Alcoa Corporation. Áður starfaði Tómas sem framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Norðuráli. Tómas Már er menntaður umhverfisverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistarapróf í skipulagsverkfræði frá Cornell-háskólanum í New York. Hann hefur setið í fjölda stjórna og var m.a. formaður Viðskiptaráðs frá 2009-2012, sat í stjórn Samtaka iðnaðarins frá 2005-2011 og hefur verið í stjórn evrópskra álframleiðenda frá 2012.