Fréttir

Þekkir þú manninn?
Föstudagur 5. júlí 2019 kl. 12:49

Þekkir þú manninn?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar upplýsinga í tengslum við mál sem er til rannsóknar hjá embættinu. Á meðfylgjandi mynd, þótt óskýr sé, má greina ökumann bifreiðar sem óskað er eftir að ná tali af.

Maðurinn er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000.

Þeir sem vita hver maðurinn er, eða hvar hann er niðurkominn, eru sömuleiðis beðnir um að hafa samband við lögreglu, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024