Fréttir

Tekin með mikið magn lyfja
Miðvikudagur 21. ágúst 2019 kl. 14:38

Tekin með mikið magn lyfja

Ökumaður og farþegi í bifreið hans, sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af aðfaranótt sunnudagsins sl. reyndust vera með mikið magn af lyfseðilsskyldum lyfjum bæði í bifreiðinni og á sér. Um var að ræða sterk verkjalyf, svefnlyf og róandi lyf. Fólkið var handtekið og fært til skýrslutöku á lögreglustöð. Leikur grunur á að lyfin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar en málið er í rannsókn hjá lögreglu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024