Fréttir

Stækkun á Ösp mun breyta miklu í starfsemi skólans
Frá upphafi framkvæmda við sérdeildina.
Mánudagur 27. maí 2019 kl. 05:00

Stækkun á Ösp mun breyta miklu í starfsemi skólans

Fyrir skömmu hófust framkvæmdir á nýrri viðbyggingu við sérdeildina Ösp við Njarðvíkurskóla. Viðbyggingin er um 282 m² sem mun breyta miklu í starfsemi deildarinnar. Einnig verða gerðar endurbætur að innan á núverandi húsnæði sem er 336 m² að stærð. Stefnt er að því að viðbyggingin verði tilbúin eigi síðar en 1.október 2019 að því er fram kemur á heimasíðu skólans.

Sérdeildin Ösp var stofnuð árið 2002 þegar skólaúrræði vantaði fyrir nemendur sem gátu ekki nýtt sér almenna bekkjarkennslu. Deildin er hugsuð fyrir nemendur í 1.-10. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar sem þurfa á slíku úrræði að halda.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Allir nemendur Asparinnar tilheyra eigin umsjónarbekk í Njarðvíkurskóla og vinna starfsmenn að því að hafa velferð nemenda í fyrirrúmi við skipulagningu á námi þeirra. Í Öspinni er unnið eftir einstaklingsáætlunum og er meðal annars lögð áhersla á tjáningu, lestur, stærðfræði, skynnám, félagsfærni og athafnir daglegs lífs. Nemendur Asparinnar sækja sérgreinatíma og aðrar kennslustundir með umsjónarbekk sínum í Njarðvíkurskóla eins og kostur er. Þegar skóla lýkur er boðið upp á frístundaúrræði fyrir nemendur Asparinnar.

Deildarstjóri er Kristín Blöndal og auk hennar starfa við deildina grunnskólakennarar, þroskaþjálfar, félagsliðar og stuðningsfulltrúar.