Fréttir

Samkaup innkalla Tortilla flögur vegna aðskotaefnis
Þriðjudagur 2. ágúst 2022 kl. 10:50

Samkaup innkalla Tortilla flögur vegna aðskotaefnis

Samkaup hafa í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu á Santa Maria Organic Crospy Corn Tortilla Chips Salted og innkallað vöruna frá neytendum sem keyptu hana í Nettó eða Kjörbúðinni.

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila til verslunarinnar þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ástæða innköllunar eru aðskotaefni, svokölluð trópanbeiskjuefni (atrópín og skópalamín), sem hafa greinst yfir mörkum eins og þau eru skilgreind eru í reglugerð. Matvæli sem innihalda magn aðskotaefna yfir mörkum eru ekki örugg til neyslu.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Santa Maria Organic
Vöruheiti: Crispy Corn Tortilla Chips Salted
Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: Allar best fyrir dagsetningar
Nettómagn: 125 g
Strikamerki: 7311310032067
Framleiðandi: Framleitt fyrir Paulig-Santa Maria AB í Svíþjóð
Framleiðsluland: Belgía