Fréttir

Reyndi að stinga lögregluna af
Miðvikudagur 5. júní 2019 kl. 11:29

Reyndi að stinga lögregluna af

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum  handtekið sex ökumenn sem grunaðir voru um vímuefnaakstur. Einn þeirra, tæplega fimmtugur karlmaður,  ók á ljósastaur og velti bifreið sinni. Hann hljóp síðan af vettvangi en lögregla fann hann fljótlega. Hann var grunaður um fíkniefnaakstur, vörslur fíkniefna, auk þess sem hann ók sviptur ökurétti ævilangt. Í fórum hans fannst meint þýfi.

Annar ökumaður, erlendur karlmaður, framvísaði grunnfölsuðu ökuskírteini þegar lögregla hafði afskipti af honum. Honum er gert að gangast undir reglubundna tilkynningaskyldu á lögreglustöð næstu átta vikurnar .
Auk þessa voru fáeinir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og tveir til viðbótar óku á negldum hjólbörðum. Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af átta óskoðuðum eða ótryggðum bifreiðum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024