Fréttir

Nítján netglæpir á síðasta ári
Laugardagur 24. ágúst 2019 kl. 10:04

Nítján netglæpir á síðasta ári

Á árinu 2018 komu upp hjá lögreglunni á Suðurnesjum nítján mál sem flokka má undir netglæpi. Netglæpir eru, í víðustu skilgreingu orðsins, þau brot sem framin eru með tilstuðlan internetsins. Þrjú málanna sem um ræðir eru svokallaðir svikapóstar (e: BEC -Business email compromise) þar sem óprúttnir aðilar hafa sent tölvupósta í nafni yfirmanns fyrirtækis til starfsmanns, sem hefur aðgang að fjármálum viðkomandi fyrirtækis, í þeim tilgangi að reyna að svíkja út fé.

Ellefu mál sem varða fjársvik á netinu voru tilkynnt, meðal annars á bland.is eða á hinum ýmsu Facebook síðum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Eitt mál varðar áreiti á samfélagsmiðlum og jafnframt komu upp fjögur mál sem varða dreifingu á nektarmyndum.

Þetta kemur meðal annars fram í nýútkominni ársskýrslu embættisins 2018. Sjá nánar á: https://www.logreglan.is/wpcontent/uploads/2019/08/%c3%81rssk%c3%bdrsla-L%c3%b6greglustj%c3%b3rans-%c3%a1-Su%c3%b0urnesjum-2018.pdf