Fréttir

Mikil tækifæri Keilis í auknu samstarfi við Kanada
Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis; Arnar Hafsteinsson, forstöðumaður Íþróttakademíu Keilis; Dr. Douglas Booth, deildarforseti hjá TRU; og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Mánudagur 11. nóvember 2019 kl. 09:42

Mikil tækifæri Keilis í auknu samstarfi við Kanada

Dr. Douglas Booth, deildarforseti ævintýraleiðsögunáms og ferðaþjónustu við Thompson Rivers University (TRU) í Kanada, fundaði nýverið með forsvarsmönnum Keilis um samstarf skólanna.

Frá árinu 2013 hefur háskólinn vottað leiðsögunám í ævintýraferðamennsku á vegum Keilis, en skólinn er viðurkenndur sem einn af leiðandi aðilum á heimsvísu í sérhæfðu leiðsögunámi ævintýraferðaþjónustu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Douglas tók nýverið við starfi deildarforseta við TRU og hefur skólinn lagt áherslu á að treysta enn frekar samstarfið við Keili, meðal annars með sameiginlegri markaðssetningu á leiðsögunámi, innleiðingu nýrra námsbrauta og þátttöku í þróunarverkefnum. Mikil tækifæri eru á auknu samstarfi skólanna, meðal annars sem snýr að sjálfbærni, umhverfisvitund og ferðaþjónustu, ásamt hinum ýmsu birtingarmyndum ævintýraferðamennsku á norðurslóðum.

„Við hjá Thompson Rivers University erum stolt af samstarfinu við Keili og gerum okkur grein fyrir þeim mikilvægu áhrifum sem leiðsögunám í ævintýraferðamennsku hefur haft á ferðaþjónustu á Íslandi“, segir Douglas. „Námið er ekki einungis mikilvægur liður í að mennta hæfa og vel þjálfaða leiðsögumenn í óbyggðaferðum og afþreyingarferðaþjónustu, heldur er með í að mennta næstu kynslóð frumkvöðla í ferðaþjónustu.“

Fulltrúar TRU og Keilis ákváðu á fundinum að setja saman áætlun um sértæk þróunarverkefni sem snúa gagngert að auknu samstarfi menntastofnananna með áherslu á fyrrgreind atriði. Þá hefur TRU áhuga á að auka enn frekar samstarf við Keili með áherslu á nýtt námsframboð, meðal annars í ferðaþjónustu, viðburðastjórnum innan afþreyingarferðamennsku, námsframboði í fjarnámi svo sem einkaþjálfun, ásamt sjálfbærni og vistvænni ferðaþjónustu. Á fundi með bæjarstjóra Reykjanesbæjar var enn fremur lögð áhersla á samstarfsmöguleika í fræðslutengdri ferðaþjónustu ásamt þróun á tækifærum til útikennslu.

Alþjóðlegt nám með mikla möguleika

Á núverandi skólaári leggja samtals sextán nemendur frá sex löndum stund á námið, en það tekur átta mánuði þar sem helmingur námstímans fer fram á vettvangi í náttúru Íslands. Nemendurnir í ár koma frá Íslandi, Kanada, Grænlandi, Frakklandi, Hollandi og Kína, en þetta er í fyrsta sinn sem kínverskur nemandi leggur stund á námið. Leiðsögunám í ævintýraferðamennsku hefur vakið athygli bæði meðal íslenskra og erlendra nemenda og hafa samtals 85 nemendur frá hátt í tuttugu þjóðernum útskrifast á undanförnum árum.

Markmið námsins hefur verið að auka færni og þekkingu í flestum geirum ævintýraferðamennsku, meðal annars með því að tryggja öryggi leiðsögu- og ferðamanna í óbyggðum ásamt því að auka gæði og þjónustu í greininni. Að náminu koma bæði innlendir og erlendir kennarar sem hafa allir öðlast alþjóðleg réttindi og mikla færni á sínu sviði, svo sem í fjallamennsku eða kajak- og flúðasiglingum.

Um er að ræða 60 ECTS, átta mánaða nám á háskólastigi, sem hentar vel þeim sem hafa mikinn áhuga á ferðamennsku og útivist við krefjandi aðstæður. Útskrifaðir nemendur hafa möguleika á að vinna á óhefðbundnum og fjölbreyttum starfsvettvangi með góðum starfsmöguleikum víða um heim í ört vaxandi grein ævintýraferðamennsku.