Fréttir

Menntamálaráðherra ræddi við Sólborgu og Siggu Dögg
Sólborg hefur verið í blaða- og fréttamennsku hjá Víkurfréttum á síðustu árum og spjallaði m.a. við Siggu Dögg um kynfræðslu. Viðtalið var sýnt í Suðurnesjamagasíni og á vf.is og fylgir hér með fréttinni.
Miðvikudagur 7. október 2020 kl. 12:45

Menntamálaráðherra ræddi við Sólborgu og Siggu Dögg

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fundaði í gær um málefni kynfræðslu í skólum og ræddi þar m.a. við Keflvíkingana Sólborgu Guðbrandsdóttur fyrirlesara og Sigríði Dögg Arnardóttur kynfræðingi um málefni kynfræðslu í skólum landsins. Sólborg hefur haldið fyrirlestra um samskipti, mörk, kynlíf og fjölbreytileika í grunnskólum, félagsmiðstöðvum og framhaldsskólum undanfarin misseri og heldur úti Instagram-reikningnum „Fávitar“ þar sem m.a. vakin er athygli á algengi kynferðisofbeldis. Sigríður Dögg hefur sinnt kynfræðslu um land allt frá árinu 2010 auk þess að gefa út þrjár bækur og starfa við kynfræðslu í fjölmiðlum.

„Við áttum frábæran fund um þetta mikilvæga málefni sem brennur á mörgum – ekki síst unga fólkinu okkar sem kallar eftir öflugri fræðslu um kynferðismál. Þetta er brýnt samfélagslegt verkefni,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Í vor 
ályktaði Alþingi um mikilvægi skipulagðra forvarna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni og fól mennta- og menningarmálaráðherra m.a. að samþætta forvarnir kennslu og skólastarfi á öllum skólastigum og vinna að fleiri aðgerðum í samvinnu við félags- og barnamálaráðherra og heilbrigðisráðherra. Í aðgerðaáætlun sem fylgir þingsályktuninni er meðal annars fjallað um að efla aðgengi að aldursmiðuðu náms- og fræðsluefni, gera mat á áhrifum aðgengis barna og ungmenna að klámi og skipuleggja fræðsluátak um kynferðislega friðhelgi.

„Fyrsta skref okkar í kjölfar þessa fundar verður að vinna sem fyrst úttekt á framkvæmd kennslu í kynfræðslu í skólum. Starfshóp verður falið að koma að slíkri úttekt og skila tillögum til úrbóta. Við munum í kjölfarið leita leiða til þess efla kynfræðslu svo tryggt sé að hún sé ávallt í takt við þarfir nemenda. Sú vitundarvakning sem orðið hefur um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni er geysilega mikilvæg fyrir samfélagið, en það er okkar að tryggja að sú þekking og vitund skili sér markvisst inn í skólakerfið,“ segir ráðherra.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024