Fréttir

Mældist á rúmlega 140 km hraða
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
þriðjudaginn 15. október 2019 kl. 09:21

Mældist á rúmlega 140 km hraða

Lögreglan á Suðurnesjum kærði vel á annan tug ökumanna fyrir of hraðan akstur um og eftir helgina. Sá sem hraðast ók var erlendur ferðamaður en bifreið hans mældist á 141 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hann greiddi sektina á staðnum og var hún á annað hundrað þúsund krónur.

Þá voru fimm ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur og skráningarnúmer fjarlægð af nokkrum óskoðuðum eða ótryggðum bifreiðum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024