Fréttir

Lokað fyrir heita vatnið í kvöld
Mánudagur 14. júní 2021 kl. 09:43

Lokað fyrir heita vatnið í kvöld

Lokað verður fyrir heitt vatn vegna endurnýjunar stofnlagnar við dælustöð á Fitjum mánudaginn 14. júní kl. 22:00. Lokað verður fyrir vatnið í Suðurnesjabæ, Keflavík, Ytri og Innri Njarðvík og Vogum.

„Við hvetjum viðskiptavini sem eru með hringrásadælu á hitakerfi að taka þær úr sambandi á meðan að enginn þrýstingur er á kerfinu,“ segir í tilkynningu frá HS Veitum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Gert er ráð fyrir að lagnavinnu ljúki um nóttina og að eðlilegur þrýstingur verði kominn á að morgni þriðjudags 15. júní.

Sama kvöld þarf að loka fyrir kalt vatn í hluta Keflavíkur vegna viðhaldsvinnu. Lokað verður fyrir kalda vatnið kl. 23:00.

Ekki er vitað nákvæmlega hvað lokunin stendur lengi yfir en vatni verður hleypt á aftur um leið og vinnu lýkur og er vonast til að það verði að morgni þriðjudags.