Fréttir

Leggja ljósleiðara í kappi við hraunstrauminn
Fimmtudagur 3. júní 2021 kl. 11:13

Leggja ljósleiðara í kappi við hraunstrauminn

Gagnaveita Reykjavíkur hefur hafist handa við lagningu ljósleiðara meðfram Suðurstrandarvegi, sunnan eldstöðvanna við Fagradalsfjall. Mikilvægt er að koma rörum í jörðu áður en hraun kann að loka leiðinni um óvissa framtíð.

Verkið er unnið að fenginni nýrri hraunflæðisspá og að fengnum leyfum frá landeigendum og Grindavíkurbæ. Þetta er liður í stærra verkefni Gagnaveitu Reykjavíkur, sem unnið hefur verið í samstarfi við fleiri fjarskiptafélög, að leggja ljósleiðara allt frá Þorlákshöfn um Grindavík í Reykjanesbæ þar sem vaxandi fjöldi heimila og fyrirtækja er tengdur Ljósleiðaranum, opnu fjarskiptaneti Gagnaveitu Reykjavíkur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Strengur meðfram Suðurströndinni er mikilvægur til að treysta fjarskiptasamband innanlands, ekki síst fyrir Suðurnesin, en líka vegna netsambands við útlönd.  Ljósleiðarastrengir milli Íslands og útlanda, með öllum þeim nauðsynlega gagnaflutningi sem um þá fer, liggja frá Suðurströndinni. Gagnaveita Reykjavíkur hefur þegar lagt streng frá Þorlákshöfn að Selvogi og frá Grindavík að Ísólfsskála, bæ sem er nánast beint sunnan Nátthaga sem hraun tók að flæða niður í um hvítasunnuhelgina.

„Við teljum mikilvægt að koma lögnum þarna fyrir áður en hraunstraumur nær til sjávar og enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi,“ segir Elísabet Guðbjörnsdóttir, verkefnastjóri hjá Ljósleiðaranum. „Við leggjum strenginn óvenju djúpt, á eins metra dýpi, og nýlegar athuganir benda til að það eigi að vera öruggt. Mögulegur skaði ef við komumst ekki þessa leið með Ljósleiðarann mánuðum, misserum eða árum saman, er meiri en sá að tapa hugsanlega hluta af nokkrum plaströrum. Þannig erum við að draga úr áhættu með því að ráðast í verkið í hvelli,“ bætir Elísabet við.

Hraunflæðisspáin sem stuðst er við bendir til að hrauntaumar geti víða náð niður að strönd standi gosið lengi. Ljósleiðarinn verður lagður á eins metra dýpi, sem er um tvöfalt dýpra en alla jafna. Athuganir benda til að hiti á 40 sentimetra dýpi undir hrauni fari fljótt í um 40 gráður en rörin, sem ljósleiðaraþræðirnir eru dregnir í, þola um 190 gráður. Þau gætu þolað meiri hita, það er að gögn berist um ljósleiðaraþræðina jafnvel þótt rörin utan um þá aflagist.