Fréttir

Kanadíski flugherinn með færanlegan ratsjárbúnað á Miðnesheiði
Þriðjudagur 18. febrúar 2020 kl. 11:42

Kanadíski flugherinn með færanlegan ratsjárbúnað á Miðnesheiði

- Kanadíski flugherinn flutti færanlegan ratsjárbúnað hingað til lands til að trygga órofið eftirlit með loftrýminu.

Í ár verða ratsjáreftirlitskerfin hér á landi uppfærð og er verkefnið að mestu fjármagnað af Mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins. Til að tryggja að eftirlit með loftrýminu sé órofið flutti kanadíski flugherinn færanlegan ratsjárbúnað hingað til lands. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og 30 liðsmenn kanadísku sveitarinnar hafa undanfarnar vikur unnið að uppsetningu búnaðarins sem staðsettur er á Miðnesheiði.

Framlag Kanada er þýðingarmikið og endurspeglar mikilvægt samstarf þjóðanna, samstöðu aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og mikilvægi þess fyrir bandalagið. Afar brýnt er að á Íslandi sé virkt loftrýmiseftirlit alla daga ársins, segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Ratsjárstöð kanadíska flughersins tryggir að svo verði áfram meðan unnið er að uppfærslunni. Landhelgisgæslan er þakklát kanadísku flugsveitinni og framlagi hennar til verkefnisins, segir jafnframt.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri varnarmálasviðs LHG, kynntu sér ratsjárstöðina á dögunum.

Ljósmyndari kanadíska flughersins tók meðfylgjandi myndir.