Fréttir

Jarðskjálftavirkni við Grindavík yfir meðallagi
Laugardagur 15. febrúar 2020 kl. 17:49

Jarðskjálftavirkni við Grindavík yfir meðallagi

Jarðskjálftavirkni mælist enn á svæðinu norðan við Grindavík og er yfir meðallagi en er þó minni en þegar hún var hvað mest í lok janúar. Stærsti skjálfti sl. viku mældist M3,2 þann 11. febrúar kl.18:46 vestan við Þorbjörn. Annar skjálfti, uppá M3,1 varð í gærmorgun.

Dregið hefur úr landrisi á svæðinu en ennþá mælist aflögun. Mælingar hafa verið efldar við Þorbjörn, 2 nýir jarðskjálftamælar voru settir upp í vikunni sem leið, gasmælingar verða gerðar reglulega og telja vísindamenn að áfram þurfi að vakta svæðið vel.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Líklegasta skýring á þessari virkni er kvikuinnskot á 3-5 km dýpi rétt vestan við Þorbjörn. Líklegast er að virkninni ljúki án eldsumbrota. Næsti fundur vísindaráðs Almannavarna verður haldinn, fimmtudaginn 20. febrúar.