Fréttir

Ítölsk flugsveit væntanleg til Keflavíkurflugvallar
F-35 þota eins og þær sem notaðar verða við loftrýmisgæslu hérlendis. Mynd: Lockheed Martin
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
föstudaginn 20. september 2019 kl. 16:01

Ítölsk flugsveit væntanleg til Keflavíkurflugvallar

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju með komu flugsveitar ítalska flughersins til Íslands í næstu viku.

Um 140 liðsmenn ítalska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með sex F-35 orrustuþotur. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 26. september til 4. október.

Loftrýmisgæslan verður í samræmi við loftrýmisáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland og fyrirkomulagið verður með sama hætti og verið hefur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Flugsveitin verður með aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli en þetta er í annað sinn á þessu ári sem ítalski flugherinn er hér á landi við loftrýmisgæslu. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki fyrir lok október.

Landhelgisgæsla Íslands annast verkefnið í samvinnu við Isavia.