Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Ístak bauð lægst í hringtorgin
Þriðjudagur 30. maí 2017 kl. 17:24

Ístak bauð lægst í hringtorgin

Ístak hf. átti lægsta tilboð í gert tveggja hringtorga á Reykjanesbraut, annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Keflavíkurveg (Þjóðbraut). Tilboðin voru opnuð í dag. Þrjú fyrirtæki skiluðu inn tilboðum. 
 
Það voru Vegagerðin, Isavia og Reykjanesbær óskuðu eftir tilboðum í gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut. Aðlaga þarf aðliggjandi vegi að hringtorgunum. Framkvæmdin innifelur einnig að annast tilgreinda verkþætti við aðlögun eða flutning núverandi lagna s.s. ljósleiðara-, háspennu- og lágspennustrengja í vegunum í samráði við veitur. Allri malbikun skal lokið fyrir 1. september 2017. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2017.
 
Ístak bauð tæpar 216 milljónir króna í verkið, Ellert Skúlason ehf. bauð 224 milljónir og ÍAV hf. bauð tæpar 256 milljónir króna.
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024