Fréttir

Íbúum Suðurnesja fjölgar um sextán
Mánudagur 15. febrúar 2021 kl. 15:54

Íbúum Suðurnesja fjölgar um sextán

Íbúum Suðurnesja fjölgar um sextán einstaklinga á milli mánaða. Um nýliðin mánaðamót voru Suðurnesjamenn 28.216 talsins en voru 28.200 um áramótin.

Fækkun varð bæði í Suðurnesjabæ og Grindavíkurbæ en íbúum í Sveitarfélaginu Vogum og Reykjanesbæ fjölgaði.
Þannig fækkaði um 14 íbúa í Grindavík og 12 í Suðurnesjabæ. Í Suðurnesjabæ eru íbúar 3.637 talsins og Grindvíkingar eru 3.534 Íbúum Voga fjölgaði um 13 og eru í dag 1.338 og í Reykjanesbæ var fjölgun á milli mánaða 38 manns.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Reykjanesbær er áfram fjórða stærsta sveitarfélag landsins með 19.707 íbúa þann 1. febrúar sl.