Fréttir

Hreinsum Krossvík á Reykjanesi með Reykjanes Geopark, Bláa hernum og SFS
Föstudagur 7. júní 2019 kl. 15:33

Hreinsum Krossvík á Reykjanesi með Reykjanes Geopark, Bláa hernum og SFS

Blái herinn, Reykjanes Geopark og Samtök fyrirtækja í Sjávarútvegi (SFS) standa að hreinsunarátaki í Krossvík á Reykjanesi í tilefni af Degi hafsins kl. 13:00–15:00.

Þeir sem vilja leggja átakinu lið eru boðnir hjartanlega velkomnir með í för. Við bendum á að nota fjölnota hanska sem hægt er að þvo eftir hreinsunina, auk þess sem fjölnota innkaupapokarnir henta vel undir smærra rusl. Þá viljum við benda fólki á að vera í góðum skóbúnaði þar sem undirlag getur verið varasamt í fjörunni og klæða sig eftir veðri. Fiskikör verða á svæðinu til að losa úr pokunum. Eftir hreinsun verður þátttakendum boðið upp á hressingu.

Sérstaklega er vakin athygli á því að þessi hreinsun hentar yngstu kynslóðinni illa þar sem svæðið getur verið erfitt yfirferðar og það tekur um 25 mínútur að ganga í víkina. Þátttakendum er bent á að leggja bílnum sínum við bílastæðið við Gunnuhver að austanverðu, og ganga þaðan um slóða sem liggur í víkina. Frekari upplýsingar: https://www.facebook.com/events/335434210476158/

Við hvetjum ykkur til að taka þátt og fá sem flesta með í för. Margar hendur vinna létt verk, segir í frétt frá aðstandendum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024