Karlakórinn
Karlakórinn

Fréttir

Hótel Keflavík hefur safnað 5,3 milljónum króna fyrir Grindvíkinga
Kjartan F. Adolfsson, aðalbókari Grindavíkur, tók við gjöfinni.
Laugardagur 16. mars 2024 kl. 06:07

Hótel Keflavík hefur safnað 5,3 milljónum króna fyrir Grindvíkinga

Söfnun sem Hótel Keflavík hefur staðið fyrir síðustu vikur og er ætlað að styðja við samfélag Grindvíkinga gengur vel. Steinþór Jónsson, hótelstjóri, afhenti Kjartani Friðriki Adolfssyni, aðalbókara Grindavíkur, rétt tæpar 5,3 milljónir króna, eða nákvæmlega 5.294.694 kr. í síðustu viku.

„Við viljum sýna Grindvíkingum að við stöndum með þeim í þessum hremmingum og við ætlum að vera til staðar fyrir þau. Þessi erfiða staða er enn til staðar en við ákváðum að afhenda þá upphæð sem við höfum þegar safnað og reyna að koma henni til þeirra sem nefnd frá bæjarráði Grindavíkur telur nýtast best. Söfnunin heldur samt áfram og þessi afhending er því bæði áminning um að við flest getum gert betur og margt smátt gerir eitt stórt,“ sagði Steinþór.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hótel Keflavík lagði fram fyrstu milljónina í söfnunina og hvatti önnur fyrirtæki og einstaklinga að taka þátt. Söfnunarfé rennur allt og óskert til Grindavíkur og er fyrir samfélagið sjálft og mun nýtast sem stuðningur fyrir íbúa, félagasamtök og fleira. Bæjarráð Grindavíkur mun á seinni stigum skipa hóp sem sér um að úthluta þeim fjármunum sem safnast.

„Þessi söfnun er mjög þakkarvert framtak og mun án efa koma sér vel. Síðast í dag fékk ég símtal frá Vestmannaeyjum til fá söfnunarreikningsnúmerið til leggja þessu góða verkefni lið.

Þegar maður sjálfur lendir í svona hremmingum er gott að finna sterkan stuðning frá landsmönnum. Verkefnin eru mörg og ég sjálfur sé þessa fjármuni koma sér vel fyrir börnin okkar, íþrótta- og félagsstarf,“ sagði Kjartan.

Steinþór hótelstjóri segir að söfnunin muni halda ótrauð áfram og Hótel Keflavík mun gefa öllum fyrirtækjum sérstaka viðurkenningu sem styrkja um 500.000 krónur eða meira.

Hér getur þú lagt til þitt framlag: www.styrkja.is/okkargrindavik

Söfnunarreikningurinn „OKKAR GRINDAVÍK“ er eftirfarandi;

0146-26-000001

Kt. 580169-1559

„Ótti og hræðsla byggist á því sem enginn veit og óvissu um framtíðina. Styrkur felst í að standa saman og styðja hvort annað,“ segir Steinþór að endingu.

#okkargrindavik