Karlakórinn
Karlakórinn

Fréttir

Guðlaug Rakel tekin við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Mánudagur 4. mars 2024 kl. 12:12

Guðlaug Rakel tekin við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir tók þann 1. mars við starfi forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Heilbrigðisráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn, í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu.

Guðlaug Rakel er hjúkrunarfræðingur að mennt. Hún er einnig með meistaranám í viðskiptafræðum frá Háskóla Íslands (HÍ) og hefur jafnframt lokið ýmsum námskeiðum í lýðheilsuvísindum innan læknadeildar HÍ í tengslum við doktorsverkefni sem hún vann að um faraldsfræði notenda bráðamóttaka. Frá árinu 2000 hefur hún sinnt ýmsum stjórnunarstörfum innan heilbrigðiskerfisins. Árið 2019 tók hún við starfi framkvæmdastjóra meðferðarsviðs Landspítala þar til hún var sett tímabundið í embætti forstjóra Landspítala haustið 2021.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024