Fréttir

Gerir alvarlegar athugasemdir við reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 8. október 2020 kl. 09:41

Gerir alvarlegar athugasemdir við reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla

Gengið í þveröfuga átt miðað við stöðugar tækniframfarir að mati Hafnarráðs Suðurnesjabæjar

Í drögum að breytingum á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla, sem nú er til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda, er gert ráð fyrir að íþyngja verulega rekstri og starfsemi fiskihafna. Þær breytingar á reglugerðinni sem um ræðir munu hafa í för með sér breytingar á fyrirkomulagi og umgjörð á vigtun sjávarafla á hafnarvog. Í því felst meðal annars krafa um aukinn mannafla og tækjabúnað hafna sem mun hafa í för með sér aukinn rekstrarkostnað upp á milljónir króna. Slíkur aukinn rekstrarkostnaður mun því bætast við mjög erfiða rekstrarstöðu Sandgerðishafnar. Þetta segir í afgreiðslu hafnarráðs frá síðasta fundi þess.

Hafnarráð Sandgerðishafnar gerir alvarlegar athugasemdir við þau áform sem birtast í tillögum um breytingar á fyrrgreindri reglugerð og munu valda óviðráðanlegum kostnaðarauka í rekstri hafnarinnar. Hafnarráð bendir á að nú þegar þarf Sandgerðishöfn að bera mikinn kostnað vegna þjónustu við Fiskistofu við skráningu og endurskráningu afla sem fer um hafnarvogina. Hafnarráð telur að skoða þurfi alvarlega hvort eðlilegt sé að rekstur hafnarinnar eigi að bera þann kostnað sem hlýst af þeirri vinnu sem unnin er fyrir Fiskistofu að því leyti.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hafnarráð bendir á að í framangreindum drögum að breytingum á reglugerðinni er gengið í þveröfuga átt miðað við stöðugar tækniframfarir og möguleika sem í þeim felast. Sú tækni sem nú þegar er til staðar ætti að gefa möguleika á að byggja upp nýtt fyrirkomulag við vigtun sjávarafla sem væri mun hagkvæmara en núverandi fyrirkomulag, svo ekki sé talað um þær breytingar sem lagðar eru til á reglugerðinni og munu valda mjög auknum kostnaði.

Hafnarráð skorar á Hafnasamband Íslands að beita sér af fullu afli gegn þeim breytingum sem lagðar eru til á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. Jafnframt er skorað á Hafnasamband Íslands að beita sér fyrir því að tekið verði upp fyrirkomulag fjarvigtunar hjá öllum höfnum, sem verði fjármagnað og þjónað af fiskveiðieftirliti Fiskistofu fyrir hönd ríkisins. Slíkt fyrirkomulag mun auðvelda Fiskistofu hlutverk sitt við eftirlit með umgengni um nytjastofna sjávar og fiskveiðar en jafnfram gefa höfnum í landinu möguleika til hagræðingar og nýta þar með bestu fáanlegu tækni hverju sinni, öllum til hagsbóta.