Fréttir

Flugsveit portúgalska flughersins með fjórar F-16 til Keflavíkurflugvallar
Ljósmynd: Portúgalski flugherinn
Mánudagur 24. janúar 2022 kl. 11:53

Flugsveit portúgalska flughersins með fjórar F-16 til Keflavíkurflugvallar

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins að hefjast

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst í vikunni með komu flugsveitar portúgalska flughersins hingað til lands. Þetta er í annað sinn sem Portúgalar taka þátt í verkefninu hér á landi en síðast annaðist portúgalski flugherinn loftrýmisgæslu á Íslandi fyrir áratug. Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-16 orrustuþotur og um 85 liðsmenn sem hafa aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð fyrir að portúgalska flugsveitin geri aðflugsæfingar að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 31. janúar til 7. febrúar en æfingarnar taka mið af veðri. Portúgalski flugherinn tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Framkvæmd verkefnisins er með sama hætti og áður og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Eins og með annan erlendan liðsafla sem hér á landi dvelur tímabundið þá er í gildi viðbúnaður vegna sóttvarna meðan á dvöl portúgölsku flugsveitarinnar stendur og er framkvæmdin unnin í samvinnu við embætti landlæknis og aðra sem koma að sóttvörnum hér á landi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði utanríkisráðuneytisins og í samvinnu við Isavia. Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok mars.