Fréttir

Flug og borgarferðir frá Manchester til Íslands 2022
Föstudagur 22. janúar 2021 kl. 11:30

Flug og borgarferðir frá Manchester til Íslands 2022

Breska flugfélagið Jet2.com og ferðaskrifstofan Jet2CityBreaks ætla að bjóða upp á flug og borgarferðir frá Manchester á Englandi til Íslands sumarið 2022. Boðið verður upp á flugferðir milli Keflavíkurflugvallar og Manchester-flugvallar á mánudögum og fimmtudögum frá apríl til október á næsta ári.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hægt verður að kaupa stakt flugfar með Jet2.com eða pakkaferð til Íslands með Jet2City Break. Þannig er veitt svar við eftirspurn Breta eftir ferðum til Íslands en einnig fá Íslendingar aðgengi að Manchester-borg og Norðvestur-Englandi. Jet2.com og Jet2City Break hófu flug til Íslands árið 2019.

„Við vitum að það er mikil eftirspurn eftir flugi og borgarferðum til Íslands frá viðskiptavinum okkar,“ segir Steve Heapy, forstjóri Jet2.com og Jet2holidays. „Það er okkur mikið gleðiefni að geta boðið upp á flug og borgarferðir fyrir sumarið 2022 frá Manchester-flugvelli. Það er mikil uppsöfnuð eftirspurn og við vitum að flug- og borgarferðir okkar verða vinsælar.“

„Við á Keflavíkurflugvelli erum einkar ánægð með að góðir samstarfsaðilar okkar hjá Jet2.com hafi ákveðið að framlengja vetraráætlun sína inn í sumarið,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar hjá Isavia. „Tilkynning um nýja flugleið frá Manchester til Íslands sumarið 2022 á þessum óvissutímum eykur trú okkar á að ferðaþjónustan muni vaxa á ný og sýnir einnig að Jet2.com hefur trú á markaðnum á Íslandi.“