Fréttir

Erlendur ferðamaður lenti í leðjupytt við kvikmyndatöku
Laugardagur 8. júní 2019 kl. 10:51

Erlendur ferðamaður lenti í leðjupytt við kvikmyndatöku

Flytja þurfti erlendan ferðamann á Landspítala um síðustu helgi eftir að hann hafði stigið ofan í leðjupytt við Engjahver og brennt sig á fæti. Maðurinn var við stuttmyndatöku ásamt leiðsögumanni, þegar sá fyrrnefndi gekk aftur á bak og lenti ofan i sjóðheitum pyttinum. Hann brenndist frá tám og upp að hné.
Björgunarsveit, lögreglan á Suðurnesjum og sjúkraflutningamenn mættu á slysstað og var manninum komið eins fljótt og unnt reyndist undir læknis hendur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024