Fréttir

Enn einn risastyrkur til Júlíusar til rannsókna á málstoli
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 15. október 2020 kl. 10:32

Enn einn risastyrkur til Júlíusar til rannsókna á málstoli

Fjórði hver einstaklingur sem nær fullorðinsaldri fær heilablóðfall. Prófessor Júlíus Gísli Friðriksson stýrir rannsóknum á málstoli við Suður Karólínu háskóla í Bandaríkjunum um hvernig auka megi bata eftir heilablóðfall. Eftirtektarverður árangur hefur náðst.

Keflvíkingurinn Júlíus Gísli Friðriksson, prófessor í talmeinafræði við háskólann í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum hefur stýrt rannsóknum á málstoli eftir heilablóðfall og fengið mjög háa fjárstyrki til verkefnisins á undanförnum tuttugu árum. Nýlega fékk hann 12,5 milljónir dollara styrk en fyrir þremur árum fékk hann 11,5 milljónir dollara og hefur hann fengið um 41 milljónir dollara í styrki frá árinu 2001. Hátt í 6 milljarða króna á núvirði.

Júlíus greindi frá rannsóknum sínum í Bandaríkjunum í viðtali í þættinum Suður með sjó hjá Víkurfréttum í apríl 2019.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Það er ákaflega gaman og gefandi að finna upp eitthvað nýtt til að hjálpa fólki,“ sagði Júlíus en hann lék m.a. körfubolta með Keflavík á yngri árum áður en hann fór í háskólanám til Bandaríkjanna eftir nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Það hefur teygst úr þeirri námsdvöl því Júlíus hefur ekki komið heim síðan nema í heimsóknir en Júlíus á eiginkonu og börn og býr öll fjölskyldan í Suður-Karólínu.

Fjallað hefur verið um rannsóknir Júlíusar í virtum læknatímaritum en niðurstaða úr þeim segja að fjórði hver einstaklingur sem nær fullorðinsaldri fái heilablóðfall. Júlíus segir að helstu ástæður fyrir því að fólk fái heilablóðfall séu erfðatengdar og einnig lífsstíl. Mikilvægt sé að stunda hreyfingu, borða hollan mat og reykja ekki.

Heilablóðfall er helsta ástæða fyrir fötlun hjá fólki eftir miðjan aldur. Júlíus og starfsfólkið hans hefur lagt mikla vinnu í rannsóknir á að finna hvernig bæta megi heilsu fólks sem fengið hefur heilablóðfall. Í þessum rannsóknum hafa verið gerðar tilraunir með að hleypa lágum rafstraum á heilavefinn og niðurstaðan úr þeim eru jákvæðar. 

„Þetta snýst um að bæta endurhæfingu fólks. Flestir sjúklinga eru búnir að reyna aðra endurhæfingu. Það er ekkert hægt að gera við skemmd á heila en það er hægt að virkja heilbrigða hluta hans betur. Við hleypum lágum straumi á heilavefinn, aðeins um 1 milliamper og það hefur sýnt góðar niðurstöður. Með þessum rafmagnsskotum vonumst við til að geta tvöfaldað batann sem skiptir mjög miklu máli því algengar afleiðingar af heilaskemmdum hafa áhrif á tölur og skilning. Við erum þannig að reyna að virkja aðrar stöðvar í heilanum til að breytast og vaxa, til að ná sem mestum bata fyrir einstaklinginn.“

Með fréttinni fylgir viðtalið við Júlíus í þættinum Suður með sjó.