Fréttir

Einungis áhleyping á hafnarsvæðið í Grindavík í dag
Fimmtudagur 22. febrúar 2024 kl. 09:00

Einungis áhleyping á hafnarsvæðið í Grindavík í dag

Almannavarnir ítreka að einungis verður áhleyping á köldu vatni um hafnarsvæðið í Grindavík í dag,  fimmtudaginn, 22.febrúar.
Fyrstu svæðin sem áætlað er að hleypa köldu vatni á eru niður við Grindavíkurhöfn, þá er svæði 1, 2 og 3 á meðfylgjandi mynd. 

Tímaáætlun áhleypingar er eftirfarandi: 
Svæði 1 kl. 10:00 (grænt svæði á korti)
Svæði 2 kl. 13:00 (gult svæði á korti)
Svæði 3 kl. 14:00 (rautt svæði á korti) 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Við áhleypingu er fyrst skolað út úr lögnunum áður en þrýstingur byggður í dreifkerfinu, því þurfa inntakslokar kaldavatnsins í fasteignum að vera lokaðir í upphafi. Mikilvægt er að hafa í huga að áreiðanleiki viðgerðar undir nýja hrauninu er ekki þekktur og því gæti viðgerð brugðist og vatnið farið aftur af. 

Þá kann að vera að dreifikerfi vatnsveitunnar innanbæjar leki eftir jarðhræringarnar.

Það mun skýrst á næstu dögum hvort viðgerð haldi, þ.e. eftir að fullur þrýstingur er kominn á kerfið. Ákvörðun um það að setja kalt vatn á fleiri svæði og í hvaða röð verður svo tekin á næstu dögum.

Það er gríðarlega mikilvægt fyrir verkefnið í heild sinni að fasteignaeigandi fyrir hverja fasteign, eða fulltrúi hans sé viðstaddur og því hefur verið haft samband við alla eigendur og þau mæta núna klukkan 9  9 í Slökkvistöð Grindavíkur þar sem verklag áhleypingar verður kynnt nánar. 
Þegar áhleyping á sér stað vaktar hver og einn sína eign. Viðbragðsaðilum er ekki ætlað það hlutverk eða slík vernd eigna.

Varðandi verklag í fyrsta áfanga áhleypingar fimmtudaginn 22 febrúar:
•    Húseigendur á þeim svæðum sem hleypt verður á hittast klukkan 9 í Slökkvistöð Grindavíkur þar sem verklag áhleypingar verður kynnt nánar. 
•    Stefnt er á að húseigandi geti hleypt vatni inn á kerfi hússins u.þ.b klukkustund eftir áhleypingu/útskolun skv. tímaplani hér að ofan, en ætti að gera svo að vel ígrunduðu máli hvort mögulegir lekar séu í lagnakerfum hússins.
•    Mikilvægt er að fasteignaeigendur séu með GSM síma og muni eftir húslyklum.