Fréttir

Bretar áhugasamir um græna orku á Reykjanesi
Úr Orf Líftækni í Grindavík.
Fimmtudagur 7. janúar 2021 kl. 06:35

Bretar áhugasamir um græna orku á Reykjanesi

Á dögunum birtist grein í breska dagblaðinu The Guardian þar sem fjallað er um græna orku á Íslandi. Fyrirtæki á Reykjanesi koma sérstaklega mikið við sögu í umfjölluninni þar sem m.a. er fjallað um endurnýtanlega orku, fiskeldi, og hátækni gróðurhús.

Fjallað er um Carbon recycling í Svartsengi þar sem metanól er framleitt með endurvinnslu á koltrísýringsútblæstri og raforku. Nær Grindavík er gróðurhús Bioeffect þar sem vínsindamenn hafa þróað prótín úr byggi. Þannig hafa orðið til húðvörur í hæsta gæðaflokki sem seldar eru um allan heim. Allt saman keyrt á grænni orku úr nágrenninu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fiskeldi Matorku við Grindavík er einnig meðal efnis í greininni en jarðhiti frá Reykjanesi er nýttur við starfsemina. Líftæknifyrirtækið Algalíf á Ásbrú ræktar örþörunga sem nýttir eru í fæðubótarefni. Í umfjöllun breska blaðsins er ítarlega greint frá framleiðsluferlinu sem er einkar áhugavert.

Hið einstaka Bláa Lón er að sjálfsögðu nefnt til sögunnar enda brautryðjandi í grænni ferðamennsku á heimsvísu, segir á https://www.visitreykjanes.is/

Fiskeldi Matorku í Grindavík.