Vörumiðlun
Vörumiðlun

Fréttir

Besta rekstrarniðurstaða hjá Reykjanesbæ um langt skeið
Föstudagur 10. maí 2024 kl. 09:49

Besta rekstrarniðurstaða hjá Reykjanesbæ um langt skeið

Ársreikningur Reykjanesbæjar var samþykktur í seinni umræðu á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þriðjudaginn 7. maí. Jákvæð rekstrarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs nam 1.453 milljónum króna en 2.440 milljónum króna í samanteknum ársreikningi.

Í tilkynningu frá Reykjanesbæ kemur fram að aukið veltufé frá rekstri var nýtt til nauðsynlegrar innviðauppbyggingar vegna mikillar fjölgunar íbúa síðustu árin og í ýmis viðhaldsverkefni vegna rakaskemmda. Fjárfestingar námu 4.965 milljónum króna í A-hluta bæjarsjóðs og 7.713 milljónum króna í samanteknum ársreikningi A og B hluta.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Áætlun ársins með viðauka gerði ráð fyrir 707 milljónum króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu bæjarsjóðs og er þetta því mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir. Munar þar mest um hærri útsvarstekjur en áætlað var enda sé það stefna Reykjanesbæjar að áætla tekjur hóflega.

Nú er unnið að margvíslegri uppbyggingu á vegum sveitarfélagsins, m.a. byggingu íþróttahúss og sundlaugar við Stapaskóla auk tveggja tveggja leikskóla sem ráðgert er að taka í notkun síðar á árinu. Þá segir í tilkynningunni að skatttekjur og framlög úr jöfnunarsjóði námu 919 þúsund króna á hvern íbúa á árinu 2023 í stað 848 þúsund króna á árinu 2022. Skuldaviðmið A-hluta bæjarsjóðs skv. reglugerð 502/2012 er 87,74% og samstæðu A- og B-hluta 105,96% og hefur lækkað frá árinu 2022.