Fréttir

Áhrifin á Keflavíkuflugvelli munu vara í lengri tíma
Miðvikudagur 1. apríl 2020 kl. 09:43

Áhrifin á Keflavíkuflugvelli munu vara í lengri tíma

„Vegna fréttatilkynningar sem stjórn Sameykis stéttarfélags sendi frá sér í gær, 31. mars, vill Isavia ítreka að uppsagnirnar sem félagið varð nauðsynlega að fara í um þessi mánaðamót eru vegna áhrifa á starfsemi Keflavíkurflugvallar sem vara munu í lengri tíma. Þau úrræði sem ríkisstjórnin hefur boðið varðandi skert starfshlutföll eru úrræði sem hugsuð eru til skemmri tíma og því hefði verið óábyrgt að fara gegn markmiðum úrræðisins eins og formaður Sameykis hvetur til,“ segir í yfirlýsingu frá Isavia.

Þá segir einnig í yfirlýsingunni: „Einnig lítur út fyrir að formaðurinn sé að kalla eftir því að félagsmenn stéttarfélagsins hefðu verið settir í lækkað starfshlutfall, og fengið þar með lægri laun næstu mánuði, sem er einmitt það sem Isavia var að reyna að koma í veg fyrir. Isavia vill þvert á móti freista þess að halda þeim starfsmönnum sem verða fyrir skammtímaáhrifum vegna Covid-19, í fullum störfum og greiða þeim full laun meðan verið er að komast í gegnum þennan erfiða tíma og sýna þannig samfélagslega ábyrgð með því að færa ekki þær byrðar yfir á ríkið næstu mánuði.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Isavia lýsir því furðu sinni yfir þessari tilkynningu stjórnar Sameykis og yfirlýsingum formannsins því það lítur út fyrir að verið sé að ganga erinda fárra á kostnað meirihluta félagsmanna stéttarfélagsins“.