Fréttir

13,4% færri farþegar frá Íslandi í ár
Miðvikudagur 7. ágúst 2019 kl. 05:00

13,4% færri farþegar frá Íslandi í ár

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru í júlímánuði um 231 þúsund eða um 47 þúsund færri en í júlí árið 2018, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkun milli ára nemur 17%.

Frá áramótum hefur um 1,1 milljón erlendra farþega farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 13,4% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fækkun hefur verið alla aðra mánuði frá áramótum, í janúar fækkaði brottförum um 5,8%, í febrúar um 6,9%, í mars um 1,7%, í apríl um 18,5%, um 23,6% í maí og 16,7% í júní. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í júlí eða 28,3% brottfara og fækkaði þeim um 36,2% milli ára. Þjóðverjar voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru 19 þúsund talsins eða 7,9% færri en í júlí árið áður. Í þriðja sæti voru brottfarir Frakka, um tólf þúsund talsins og fækkaði þeim um 3,9% milli ára.

Um 60 þúsund Íslendingar fóru utan í júlí í ár eða 8,9% færri en í júlí 2018. Frá áramótum hafa um 367 þúsund Íslendingar farið utan eða 5,6% færri en á sama tímabili í fyrra.