Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Aðsent

Takið vel á móti fermingarbörnum
Þriðjudagur 1. nóvember 2022 kl. 16:44

Takið vel á móti fermingarbörnum

Fermingarbörn í kirkjunum á Suðurnesjum muna ganga í hús 1. og 2. nóvember milli kl. 17:00-20:00 og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta er árleg söfnun fermingarbarna Þjóðkirkjunnar. Fyrir söfnunina hafa fermingarbörnin fengið fræðslu um verkefnið, sem snýst um að safna fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda. 

Við hvetjum bæjarbúa til þess að taka vel á móti fermingarbörnum, sem hafa ávallt staðið sig vel og safnað drjúgum upphæðum í þessu verkefni sem hefur komið sér vel fyrir svæði þar sem vatnsskortur er viðvarandi vandamál.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Með kærleikskveðju,
prestarnir á Suðurnesjum.