Viðskipti

Northern Light Inn í hópi bestu hótela landsins
Fimmtudagur 25. júní 2015 kl. 09:39

Northern Light Inn í hópi bestu hótela landsins

Northern Light Inn hótelið í Grindavík var valið eitt af bestu hótelum á Íslandi af notendum Trip Advisor fyrr á þessu árið. Hótelið var valið eitt af 10 bestu hótelum landsins í tveimur flokkum, fyrir þjónustu og fyrir rómantískar ferðir. Í fyrradag fékk hótelið svo viðurkenningu frá Trip Advisor fyrir að hafa fengið topp einkunnir frá notendum síðunnar í fimm ár í röð.

Í tilkynningu á Facebook síðu Northern Light Inn segir:

„Í dag fékk Northern Light Inn viðurkenningu frá TripAdvisor, en fyrir að fá "Certificate of Excellence" fimm ár í röð þá fær hótelið nú viðurkenninguna "Hall of Fame" frá TripAdvisor.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Við þökkum gestum okkar fyrir að gefa sér tíma til að skrifa um veru sína hjá okkur og ekki síður þökkum við frábæru starfsfólki okkar sem er ástæðan fyrir þessari viðurkenningu frá TripAdvisor.“