Fréttir

Bláa Lónið verður lokað gestum vegna framkvæmda
Föstudagur 21. apríl 2017 kl. 13:21

Bláa Lónið verður lokað gestum vegna framkvæmda

- við jarðsjávarlögn frá 23. til og með 27. apríl

Bláa Lónið og athafnasvæði þess verður lokað frá 23. apríl til og með 27. apríl 2017 vegna framkvæmda við jarðsjávarlögn. Ákvörðun um lokunartímabilið var tekin í október á síðasta ári og var þá þegar lokað fyrir bókanir á umræddu tímabili. 
 
Verslun og veitingastaðir í Bláa Lóninu munu einnig loka á tímabilinu ásamt Silica hóteli. Starfsemin opnar aftur þann 28. apríl.
  
Framkvæmdin er mikilvægur þáttur í nýframkvæmdum Bláa Lónsins, en ný heilsulind sem mun bera heitið Lava Cove verður tekin í notkun í haust ásamt hóteli sem verður starfrækt undir nafninu Moss Hotel. Lögnin mun flytja jarðsjó inn á lónsvæði heilsulindarinnar og hótelsins.
 
Nýframkvæmdum miðar vel áfram og mun þeim ljúka í haust þegar hin nýja heilsulind og hótel verða tekin í notkun. 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024