Fréttir

Akurey AK í togi við Garðskaga
Miðvikudagur 7. febrúar 2018 kl. 11:39

Akurey AK í togi við Garðskaga

Togarinn Ottó N. Þorláksson er núna með einn nýjasta togarann í íslenska flotanum, Akurey AK-10, í togi skammt undan Garðskaga. Varðskipið Þór er skammt undan en varðskipið var mannað í morgun vegna óvissuástands með Akurey en skipið er með veiðarfæri í skrúfunni.
 
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á þriðja tímanum í nótt símtal frá skipstjóra togarans Akurey AK-10 til að grennslast fyrir um möguleika á aðstoð varðskips. Skipið var þá statt úti fyrir Faxaflóa. Fyrr um kvöldið hafði það fengið í skrúfuna og fest trollið. Ottó N. Þorláksson RE-203 kom skömmu síðar þar að og tók Akureyna í tog. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
 
Upp úr klukkan hálffjögur hafði áhöfn Akureyjar aftur samband við stjórnstöð og hafði þá veðrið versnað töluvert og horfurnar enn verri. Ljóst var að það tæki varðskipið Tý, sem er nú við eftirlit á loðnumiðunum fyrir austan land, rúman sólarhring að komast á vettvang. Landhelgisgæslan er að öllu jöfnu aðeins með eitt varðskip á sjó en í ljósi aðstæðna var ákveðið að kalla saman aðra áhöfn svo varðskipið Þór gæti farið og aðstoðað við dráttinn á Akurey. Um leið var haft samband við grænlenska fiskiskipið Tasermiut, sem er á þessum slóðum líka, til að upplýsa um stöðuna og athuga hvort skipið gæti verið til taks ef með þyrfti.
 
Þessa stundina er Ottó N. Þorláksson með Akurey í togi á um það bil sjö hnúta ferð norðvestur af Garðskaga. Varðskipið Þór lagði úr höfn í Reykjavík laust fyrir klukkan tíu. Búist er við að skipin mætist um hádegisbil og Þór fylgi þeim til hafnar. Gert er ráð fyrir að þau verði komin til hafnar í Reykjavík síðdegis eða undir kvöld.
 
Vegna þessara óvenjulegu kringumstæðna er ekki um hefðbundna áhöfn að ræða á Þór. Á meðal varðskipsmanna í þessari sjóferð eru tveir liðsmenn sprengjueyðingarsveitar Landhelgisgæslunnar, sem báðir eru þó þaulreyndir sjómenn. Þá komu þrír skipverjar sem búsettir eru á Norðurlandi með áætlunarflugi til Reykjavíkur fyrr í morgun.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024