Viðskipti

Sigurður Bjarni nýr fjármálastjóri Keilis
Mánudagur 22. ágúst 2022 kl. 10:20

Sigurður Bjarni nýr fjármálastjóri Keilis

Sigurður Bjarni Hafþórsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. Fjármálastjóri veitir fjármálasviði forstöðu og tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn.

Sigurður Bjarni hefur starfað hjá Keili síðan í mars 2021 sem forstöðumaður Heilsuakademíu og síðar sem verkefnastjóri viðskiptaþróunar. Hann tekur við stöðu fjármálastjóra af Idu Jensdóttur og hefur þegar hafið störf.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Sigurður Bjarni er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri þar sem hann útskrifaðist árið 1998 með áherslu á stjórnun. Hann hefur mikla reynslu á sviði fjármála með yfir 20 ára reynslu við störf á fjármálamarkaði sem viðskipta- og vörustjóri fyrirtækja ásamt því að hafa gegnt stöðu forstöðumanns vörustjórnunar, áhættumats og forvarna fyrirtækja hjá VÍS.

Sigurður Bjarni starfaði fyrir þann tíma við verðbréfamiðlun hjá Kviku banka og við verðbréfamiðlun og eignastýringu hjá Íslenskum verðbréfum. Hann starfaði einnig sem deildarstjóri hóptíma og einkaþjálfunar hjá Hreyfingu heilsurækt ásamt því að hafa starfað sem leiðbeinandi í hóptímakennslu í rúmlega 25 ár.

Keilir miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs er leiðandi og framsækið menntafyrirtæki á Suðurnesjum. Keilir skiptist í fjóra skóla sem innihalda fjölbreytt námsframboð þar sem áhersla er á að laga sig að þörfum og kröfum nútímanemenda. Skólarnir eru Háskólabrú, Heilsuakademía, Flugakademía Íslands og Menntaskólinn á Ásbrú.

Keilir hefur það að markmiði að byggja upp námsmannasamfélag þar sem boðið er upp á vandað nám með áherslu á nýstárlega kennsluhætti og fyrsta flokks aðstöðu. Keilir starfar samkvæmt þjónustusamningi við mennta- og barnamálaráðuneytið um kennslu á framhaldsskólastigi.