Mannlíf

Gerðu það sem þú vilt! – Styrktarsýning í Heiðarskóla
Mánudagur 8. apríl 2024 kl. 10:11

Gerðu það sem þú vilt! – Styrktarsýning í Heiðarskóla

Leiklistarval Heiðarskóla styrkir Krabbameinsfélag Suðurnesja

Nú rétt fyrir páska, á árshátíð Heiðarskóla, frumsýndi leiklistarval skólans leikritið „Gerðu það sem þú vilt“ sem Bryndís Jóna Magnúsdóttir, fráfarandi skólastjóri skrifaði.  Esther Inga Níelsdóttir, Daníella Hólm Gísladóttir og Guðný Kristjánsdóttir leikstýrðu verkinu en þær hafa haft veg og vanda að uppsetningu leikrita undanfarin ár.  Leikritið fjallar um unglinga, hvað þá langar að gera í lífinu og að gott sé að standa með sjálfum sér. Verkið er samið og sett upp í tilefni 25 ára afmælis Heiðarskóla á þessu ári og tekin eru fyrir lög úr eldri verkum sem sýnd hafa verið. 

Sú fallega hefð hefur skapast í Heiðarskóla að halda eina styrktarsýningu og styðja við eitthvað gott málefni. Styrktarsýningin í ár verður þriðjudaginn 9.apríl kl.20.00 á sal Heiðarskóla. Allur ágóði mun renna  til Krabbameinsfélags Suðurnesja. Miðaverð er 1000 kr. og tekið skal fram að ekki er posi á staðnum. Vonumst til að sjá sem flesta um leið og styrkt er við gott málefni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024