Íþróttir

Vogamenn á fleygiferð
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
þriðjudaginn 4. júní 2019 kl. 15:29

Vogamenn á fleygiferð

Daganna 6. til 12. maí fór fram Hreyfivika í Vogum. Markmið hreyfiviku var að hvetja íbúa sveitarfélagsins að taka þátt í sínu samfélagi og hreyfa sig meira. Að þessu verkefni stóðu Ungmennafélagið Þróttur og Sveitarfélagið Vogar. Aðgangur var ókeypis í sundlaug bæjarins, einnig var hægt að nýta sér ræktina í Vogabæjahöllinni. Ungmennafélag Íslands heimsótti félagsstarf eldri borgara og kynnti landsmót UMFÍ 50+ sem fram fer á Neskaupsstað í sumar. Hjólreiðatúr, gönguferðir, boccia, kynning á Vogaþreki Þróttar og margt fleira var í boði fyrir alla aldurshópa. 
 
Þróttur Vogum í sundi
Það æfa 35 börn sund hjá Þrótti Vogum í dag og er þjálfari Þróttar Heiðdís Ninna Skúladóttir. Félagið hefur verið að vinna í því að byggja upp sunddeildina frá árinu 2015 og hefur uppbyggingarstarfið gengið framar vonum. Á hverju vori er haldið sundnámskeið fyrir börn sem hefja skólagöngu næsta haust og er það í umsjón Rebekku Magnúsdóttur og Alexöndru Ingþórsdóttur. 


Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024