Íþróttir

Keflvíkingar bestir á bikarmóti TKÍ
Tveir hressir Keflvíkingar sem skemmtu sér vel á mótinu. Mynd: Tryggvi Rúnarsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 17. febrúar 2021 kl. 08:51

Keflvíkingar bestir á bikarmóti TKÍ

Taekwondosamband Íslands hélt fyrsta mótið í ár um síðustu helgi. Mótið var bikarmót TKÍ og var það haldið í húsnæði Ármanns og heppnaðist einkar vel. Vegna takmarkana við íþróttamót þurfti að skipta keppendum í fleiri hópa en vanalega og það var til þess að mótið varð lengra en venjulega. Keppendur frá Keflavík voru um 50 talsins og stóðu sig einkar vel. Lið Keflavíkur fékk sautján gull, þrettán silfur og níu brons, sem var besti árangur allra félaga á mótinu.

Í myndasafninu sem fylgir fréttinni (sjá neðar á síðunni) má sjá Keflvíkinga á mótinu sem höfðu augljóslega gaman af því að komast aftur í keppni. Myndirnar tók Tryggvi Rúnarsson.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

TKD bikarmót 2021