Íþróttir

Jón Óli stýrir Grindavík áfram
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 21. október 2021 kl. 08:13

Jón Óli stýrir Grindavík áfram

Jón Ólafur Daníelsson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Grindavíkur um áframhaldandi þjálfun meistaraflokks kvenna. Jón Óli tók við liðinu síðasta vetur og undir hans stjórn endaði liðið í sjötta sæti Lengjudeildar kvenna í sumar.

Í tilkynningu á Facebook-síðu knattspyrnudeildar Grindavíkur segir það vera „mikið fagnaðarefni að Jón Óli haldi áfram störfum hjá knattspyrnudeild Grindavíkur en hann hefur þjálfað við góðan orðstír hjá félaginu og var yfirþjálfari í nokkur ár.“

Frekari frétta af leikmannamálum kvennaliðs Grindavíkur og þjálfarateymi er að vænta á næstu dögum og vikum og hafa Grindvíkingar sett stefnuna á að bæta árangur sinn á næstu leiktíð.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024