Íþróttir

Grindvíkingar bæta við leikmannahópinn
Naor Sharon Sharabani er væntanlegur til landsins í vikunni og verður vonandi kominn með leikheimild fyrir fyrsta leik Grindavíkur sem er gegn Þór Akureyri næstkomandi föstudag.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 4. október 2021 kl. 16:31

Grindvíkingar bæta við leikmannahópinn

Naor Sharabani semur við Grindavík

Grindavík hefur fengið liðsstyrk fyrir tímabilið í úrvalsdeild karla í körfubolta. Liðið hefur samið leikstjórnandann Naor Sharon Sharabani sem er 26 ára gamall og kemur frá Ísrael, hann er jafnframt með franskt vegabréf.

Naor er ekki ókunnur íslenskum körfubolta því hann lék með Valsmönnum seinni hluta tímabilsins 2019/2020  og var með 13,8 stig að meðaltali og gaf 6,9 stoðsendingar í leik.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Naor er 193 cm á hæð og mætir í góðu leikformi frá Ísrael en hann lék síðast með Maccabi Haifa í heimalandinu.

„Við erum mjög ánægðir með að vera búnir að finna leikstjórnenda sem mun leysa Dag Kár af hólmi. Við þurftum að bregðast hratt við og er mjög sáttir með að fá Naor til liðs við okkur. Þetta er öflugur leikmaður sem mun styrkja okkar lið,“ segir Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Grindavíkur.