Íþróttir

Aflraunamótið Sterkasti fatlaði maður heims fer fram í Reykjanesbæ um helgina
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 12. nóvember 2021 kl. 10:28

Aflraunamótið Sterkasti fatlaði maður heims fer fram í Reykjanesbæ um helgina

Núna um helgina, dagana 13. og 14. nóvember, fer fram heimsmeistaramót í aflraunum fatlaðra í Reykjanesbæ. Mótið kallast Sterkasti fatlaði maður heims og er þetta í nítjánda skipti sem mótið er haldið.

Mótið fer fram í Grófinni 2, eða gamla slippnum eins og margir þekkja það. Keppt verður í sex keppnisgreinum í flokki karla og kvenna. Tvær greinar verða haldnar á laugardeginum og fjórar á sunnudeginum. Keppnin hefst kl. 12:00 báða dagana.

Aflraunir fatlaðra byrjuðu 1996 að frumkvæði Arnars Más Jónssonar, þjálfara hjá Íþróttafélagi fatlaðra Reykjavík og með keppninni Sterkasti fatlaði maður Íslands. Það var svo árið 2002 sem fyrsta Sterkasti fatlaði maður heims mótið leit dagsins ljós. Síðan þá hafa vinsældir og útbreiðsla aflrauna fatlaðra á heimsvísu dafnað og stækkað undir handleiðslu Arnars Más og Magnúsar Vers Magnússonar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þetta frábæra mót sem byrjaði á íslandi er nú komið heim aftur eftir að vera haldið í til dæmis Englandi, Noregi og Kanada. Núorðið eru einnig haldin Kraftamót fatlaðra í Englandi, Þýskalandi, Ástralíu, Svíþjóð og Norður-Ameríku sem gilda sem úrtökumót fyrir Sterkasti fatlaði maður heims.

Arnar Már Jónsson (t.v.) er upphafsmaður mótsins Sterkasti fatlaði maður heims en hann hefur m.a. getið sér gott orð sem júdóþjálfari hjá Grindavík og Þrótti Vogum. Arnar og Magnús Ver (t.h.) hafa leitt verkefnið Sterkasti fatlaði maður heims á undanförnum árum og nýtur mótið stöðugt meiri vinsælda.

Hér að neðan er tengill á grein um uppgang á júdó í Grindavik og rætt við Arnar Má.