Fréttir

Verðandi flokkstjórar sækja nýtt námskeið Vinnuverndarskólans
Mánudagur 21. júní 2021 kl. 06:20

Verðandi flokkstjórar sækja nýtt námskeið Vinnuverndarskólans

Um sextíu verðandi flokkstjórar vinnuskólum Reykjanesbæjar, Voga og Grindarvíkur sóttu námskeið Vinnuverndarskóla Íslands nýlega.

Á námskeiðinu er fjallað um hvaða störf henta ungmennum í vinnuskólum eftir aldri. Reglugerð um vinnu barna og unglinga (1999) er kynnt fyrir nemendum ásamt hugtökum sem í henni eru notuð, s.s. „hættuleg vinna“. Farið er yfir vinnuverndarstarf sem á að fara fram á öllum vinnustöðum, áhættumat starfa, mikilvægi öryggismenningar og ábyrgð og skyldur atvinnurekanda og flokkstjóra.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Námskeiðið er unnið í samstarfi við VÍS og Grundarfjarðarbæ en til viðbótar við námskeið fyrir flokkstjóra hefur skólinn búið til námskeið fyrir þau ungmenni sem starfa munu í vinnuskólum sveitarfélaganna. Rétt eins og námskeið fyrir flokkstjóra eru þau rafræn og gagnvirk. Þar er farið yfir hvað ber að varast í vinnuumhverfinu, tekið er á líkamsbeytingu, vinnutíma og margt fleira. Námsefnið var leikjavætt í samstarfi við nemendur á stúdentsbraut í tölvuleikjagerð við Menntaskólann á Ásbrú. Nemendurnir gerðu leiki sem taka á mismunandi þáttum vinnuverndar í vinnuskólum á skemmtilegan og gagnvirkan máta. Hægt er að prófa leikinn Leikur vinnuverndar með því að smella hér.

Leikur vinnuverndar, sem gerður var sem hluti af verkefninu, er eftir Daniel, Leonard, Magnús Viðar og Nedas.

„Þetta er í fyrsta sinn sem búin eru til námskeið sem sérhönnuð eru fyrir þennan hóp ungmenna en afar mikilvægt er að uppfræða unga fólkið áður en það fer út á vinnumarkaðinn,“ segir Eggert Björgvinsson, verkefnastjóri við Vinnuverndarskóla Íslands.