Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Telur mikilvægt að tillagan verði samþykkt af Alþingi
Fimmtudagur 12. desember 2019 kl. 13:51

Telur mikilvægt að tillagan verði samþykkt af Alþingi

Stefnumótun og framtíðarskipulag náms á framhaldsskólastigi á Suðurnesjum var til umfjöllunar í bæjarráði Grindavíkur á síðasta fundi ráðsins. Eins og fram kemur í þingsályktunartillögu þá hefur fjölgun landsmanna undanfarin ár verið hlutfallslega mest á Suðurnesjum og langt umfram meðal fólksfjölgun í landinu. Á árinu 2018 fjölgaði íbúum á Suðurnesjum um 5,2% en árið 2017 var fólksfjölgunin um 7,4%.

Samsetning íbúa á Suðurnesjum er einnig ólík því sem gerist í öðrum landshlutum þar sem fjórðungur íbúa er af erlendu bergi brotinn.

Public deli
Public deli

Menntunarmöguleikar þurfa að endurspegla þörfina og það fjölbreytta samfélag sem þrífst á Suðurnesjum. Annað atriði sem taka þarf tillit til við skipulag náms á framhaldsskólastigi á svæðinu er hátt hlutfall vaktavinnufólks. Fjölbreyttar námsleiðir og sveigjanlegar kennsluaðferðir verða að vera í boði fyrir þann hóp, bæði fyrir framhaldsmenntun og símenntun.

Í ljósi þessa fagnar bæjarráð Grindavíkur og lýsir yfir ánægju sinni með framkomna þingsályktunartillögu og telur mikilvægt að tillagan verði samþykkt af Alþingi og að skipaður verði starfshópur um framtíðarskipulag náms á framhaldsskólastigi á Suðurnesjum.

Eins tekur bæjarráð Grindavíkur heilshugar undir umsögn frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum.