Fréttir

Sterkur grunur eftir niðurstöðu réttarmeinafræðings
Mánudagur 6. apríl 2020 kl. 12:16

Sterkur grunur eftir niðurstöðu réttarmeinafræðings

Að kvöldi hins 28. mars síðastliðins tilkynnti ættingi konu í Sandgerði um lát hennar til lögreglunnar á Suðurnesjum. Rannsóknarlögreglumaður fór þegar ásamt lækni og presti á staðinn. Ekkert á vettvangi benti til þess að eitthvað saknæmt hefði átt sér stað. Sama máli gegndi um líkskoðun á sjúkrastofnun. Visir.is fullyrðir að um sé að ræða sambýlismann konunnar. 

Þann 1. apríl barst lögreglu niðurstaða réttarmeinafræðings þess efnis að sterkur grunur léki á að andlátið hefði borið að með saknæmum hætti. Þá þegar var karlmaður á sextugsaldri handtekinn vegna rannsóknar á málinu. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald frá 1. apríl til 8. apríl næstkomandi og staðfesti Landsréttur þann úrskurð 3. apríl síðastliðinn.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Það skal undirstrikað að lögregla fylgdi gildandi verklagsreglum við aðkomu að málinu frá fyrstu stundu, segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Rannsókn er í fullum gangi en ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo komnu máli.