Fréttir

Rúmlega 200 þúsunda króna hraðasekt
Föstudagur 29. nóvember 2019 kl. 15:34

Rúmlega 200 þúsunda króna hraðasekt

Nokkrir ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum það sem af er vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 143 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. Hans bíður 210 þúsunda króna sekt og svipting ökuréttinda í einn mánuð.

Þá reyndist ökumaður, sem staðinn var að því að virða ekki stöðvunarskyldu, vera sviptur ökuréttindum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024