Fréttir

Nýr Tómas Þorvaldsson til Grindavíkur í fyrsta sinn
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
föstudaginn 9. ágúst 2019 kl. 10:19

Nýr Tómas Þorvaldsson til Grindavíkur í fyrsta sinn

Tómas Þorvaldsson GK 10, nýr togari í eigu Þorbjarnar hf kom í fyrsta skipti til heimahafnar 7. Ágúst sl. eftir að hafa farið sinn fyrsta túr. Um er að ræða 67 metra langt  skip sem er 14 metra breitt og vel tækj­um búið að öllu leyti. Sigurður Jónsson, skipstjóri var ánægður með fyrsta túrinn í samtali við grindavik.is. Hann sagði allt hafi gengið með ágætum en menn voru líka að nýta túrinn til að læra á nýtt skip en Tómas getur meðal ann­ars dregið tvö troll. grindavik.is segir frá.

„Þetta er auðvitað algjör bylting. Líkamleg áreynsla er allt önnur í þessum nýja togara. Hérna áður var allur burður með pönnurnar það sem tók á líkamlega. Núna eru vélar sem sjá um þetta þannig að þetta er allt annað og frystitækin eru nú orðin sjálfvirk."

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Sigurður sagði áhöfnina vera mjög ánægða með nýja togarann. „Það er allt miklu rýmra og það nýtist margt betur. Þetta er auðvitað miklu meira og stærra skip en Hrafn Sveinbjarnarson. Þessi er 3 metrum breiðari og 5 metrum lengri. Við höfum allir góða tilfinningu fyrir honum. Það er töluvert minni veltingur og matur og annað sem ekki var hægt að hafa á borðum í Hrafninum er núna hægt að vera með á borðum í þessum. Þetta er hörku sjóskip og mjög spennandi skip að fá að vera með,“ sagði Sigurður við grindavik.is.

Meðfylgjandi myndir eru annars vegar frá Jóni Steinari Sæmundssyni sem birti  dróna-myndband á Facebook síðu sinni hér, og hins vegar tók BergÞór Gunnlaugsson, annar skipstjóra á Tómasi líka myndir á sinni síðu. 

Eigendurnir fyrir framan nýja skipið í Grindavíkurhöfn.