Public deli
Public deli

Fréttir

Leita að nafni á nýjan leikskóla
Nýr leikskóli stendur við Byggðaveg í Sandgerði, nærri svæði sem kennt er við Gulllág. VF/Hilmar Bragi
Þriðjudagur 10. október 2023 kl. 06:34

Leita að nafni á nýjan leikskóla

Á fundi bæjarráðs Suðurnesjabæjar þann 13. september var ákveðið að leita í hugmyndabrunn íbúa og annarra áhugasamra að nafni fyrir nýjan leikskóla að Byggðavegi í Sandgerði í Suðurnesjabæ.

Leikskólinn er byggður samkvæmt teikningum JeEs arkitekta og hófst hönnun hans árið 2019. Skólinn verður fullbyggður sex deilda. Byggingarframkvæmdir eru í fullum gangi og er áætlað að skólinn opni í mars á næsta ári ef allt gengur að óskum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Suðurnesjabær hefur samið við Skóla ehf. um reksturinn sem starfar í anda Heilsustefnunnar sem kjarnast um heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins.

Í sveitarfélaginu eru í dag tveir leikskólar Gefnarborg og Sólborg.

Hugmyndir að nafni á nýja leikskólann óskast sendar á „Betri Suðurnesjabær“ inni á vef Suðurnesjabæjar í síðasta lagi 27. október 2023.